<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur, október 08, 2008

Kæru vinir.
Það er bara allt orðið vitlaust í þjóðfélaginu, svei mer þá.
Það er bara vonandi að þetta ástand lagist á næstu dögum og vikum.

En það er langt síðan eg skrifaði síðast. Um miðan águst fórum við til Akureyrar. Við vorum hja félaga mínum í Fnjóskadal í nokkra daga og svo var haldið á Blönduós þar sem bróðir minn var að gifta sig. Ég tók að mer veislustjórn. Þetta var flott kvöld.
Í lok ágúst fór eg sem fararstjóri í formúluferð til Valencia. Við gistum á 5* hoteli í Alicante en tókum rútu á milli til Valencia á formúluna. Það tóku nokkrir með ser golfsettin og spiluðu nokkra golfhringi, þarna er flott spa og auðvitað fór maður í eitt gott nudd. Veðrið var mjög gott, góður hópur, semsagt skemmtileg ferð. Það er bókað að maður fer aftur í þessa ferð á næsta ári. Ef þið viljið koma með mer þá endilega látið mig vita.

Áki Valur hefur aldeilis stækkað.Við erum 2x í viku í ungbarnasundu sem er mjög gaman. Um daginn þá fór hann öska aðeins, ekki af ónægju, heldur öskrar hann stundum bara, en þá fóru flest börnin að gráta í sundinu. Sem betur fer var tíminn að verða búinn.
En annars er hann alltaf kátur, brosandi og hlær mikið. Hann hlær svo mikið að maður heldur að eitthvað se að barninu :) Hann er buinn að fá fyrsta grautinn sinn og borðar hann þetta með bestu lyst.

Annars er allt gott að frétta, íbúðin mín er ennþá til sölu en er með góða leigendur. Vantar einhverjum góða íbúð?? :)

Gott í bili, munið gestabókina :)

Kv Gústi :)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?