föstudagur, apríl 23, 2004
GLEÐILEGT SUMAR!
Jæja þá er önnur vika á enda.
Á miðvikudagkvöldið, 21.apríl, hittust starfsmenn SBA og makar þeirra á Broadway. Og þar var mikill gleðskapur, þeir sem mættu ekki misstu af miklu. Maturinn var bara góður og ballið á eftir var ekki verra. Sumum fannst hljómsveitin spila hávaðasama tónlist, en ekki tók eg eftir því.
Eftir ballið fórum við nokkrir í miðbæ Reykjavíkur og héldum áfram dansinum.
Svo var þessi dagur líka merkisdagur hjá stráknum, hann átti sko afmæli.....jú jú tíminn líður.
Einar Clausen, þú stendur þig vel kallinn minn, alltaf duglegur að skrifa í gestabókina. það hefði verið gaman að sja þig á miðvikudagskvöldið, strákarnir voru bara í stuði.
Tilvitnun dagsins
Mistök eru tækifæri til að byrja uppá nýtt, á skynsamari hátt.
- Henry Ford

föstudagur, apríl 16, 2004
Það hefur lítið komið frá Gustisan síðustu daga en nú skal bæta úr því.
Ég var í fríi frá vinnu um páskana og fékk óvænta heimsókn frá Danmörku sem var gaman. Þannig að maður var að fara á þessa hefðbundnu staði, Gullfoss og Geysir, bæjarferð og skammtanalífið skoðað sem þýddi nokkrir bjórar sem runnu vel niður.
Berglind frænka mín fermdist þann 4.apríl og auðvitað mætti strákurinn. Einnig fermdist Sigurbjörg Bára frænka þann 8.apríl og var ekki sparað í þeirri veislu. Þá er bara ein ferming eftir, það er hann Brynjar Valur frændi minn á Hellu. Hann á að fermast þann 25.april og á öll þjóðin von á stórri veilsu á þeim bæ. Það verður líklega um 1500 manns í þeirri veislu.
En svo er það sumarið hjá SBA-Norðurleið. Það virðist líta vel út, allir mjög bjartsýnir eins og fyrir hvert sumar og hlakka ég mikið til.
Svo er það miðvikudagskvöldið...norðanmenn og konur mæta í höfuðborgina, þetta verður skemmtilegt kvöld. Ég hvet alla starfsmenn til að mæta og hinir láta sjá sig á ballinu.
Jæja, er þetta ekki bara gott í bili
kv gus
Tilvitnun dagsins
Það er auðvelt að segja nokkur hlýleg orð, en bermál þeirra er svo sannarlega endalaust.
- Móðir Theresa