<$BlogRSDUrl$>

þriðjudagur, mars 22, 2005

Þegar maður er að tala um markaðssetningu þá spyrja margir hvað þýðir markaðssetning.
Hérna er mjög góð skýring á þessu hugtaki og hægt að nota við ýmis tækifæri...lesið og lærið.

*Þú ert kona og sérð flottann mann í partýi. Þú ferð upp að honum og segir, "Ég er frábær í rúminu." Þetta er bein markaðssetning.

*Þú ert í partýi með fullt af vinum og sérð flottann mann. Einn af vinum þínum fer upp að honum, bendir á þig og segir, "hún er frábær í rúminu." Þetta er auglýsing.

*Þú ert í partýi og sérð flottann mann. Þú labbar upp að honum, færð símanúmerið hans, hringir í hann daginn eftir og segir, "Hæ, ég er frábær í rúminu." Þetta er símamarkaðsetning.

*Þú ert í partýi og sérð flottann mann, þú lagar til fötin þín, labbar upp að honum og réttir honum glasið þitt og segir við hann, "Fyrirgefðu, má ég?" Lagar bindið hans, nuddar brjóstunum létt utan í hann og segir, "Ó já meðan ég man, ég er frábær í rúminu." Þetta eru almannatengsl.

*Þú ert í partýi og sérð flottann mann. Hann labbar upp að þér og segir,"Ég hef heyrt að þú sért frábær í rúminu." Þetta er þekkt vörumerki.

*Þú ert í partýi og sérð flottann mann. Hann langar í þig en þú færð hann til að fara heim með vinkonu þinni. Þetta er söluorðspor.

*Vinkona þín getur ekki fullnægt honum, svo hann hringir í þig. Þetta er tækniaðstoð.

*Þú ert á leið í partý þegar þú uppgvötar að það gætu verið flottir menn í öllum þessum húsum sem þú ert að labba framhjá. Svo þú klifrar upp á þakið á einu af þessum húsum, sirka í miðjunni og öskrar úr þér lungun, "Ég er frábær í rúminu." Þetta er ruslpóstur.

*Þú ert í partýi, þessi vel byggði massaði maður kemur til þín, káfar á brjóstunum á þér og klípur í rassinn. Þetta er Arnold Schwarzenegger.

*Þér finnst það gott, en 20 árum seinna ákveður lögfræðingurinn þinn að þetta hafi verið kynferðisleg áreitni og undirbýr lögsókn. Þetta eru Bandaríkin.

kv gus

mánudagur, mars 14, 2005

ÆTLA BARA AÐ MINNA YKKUR Á GESTABÓKINA!!! skrifa skrifa skrifa
KV GUSMANN

þriðjudagur, mars 08, 2005

SKO....þótt að maður skrifi ekki í einn eða tvo daga þá er óþarfi að drulla yfir mann!!!

Já, það var árshátið háskólans síðasta laugardag í Sjallanum. Fyrst mætti maður í partý milli 5 og 6, nokkrir bjórar voru plöggaðir eins og einhver mundi orða það. Húsið opanði kl. 19 og boðið var upp á fordrykk, og strákurinn mætti. Villi bingó var veislustjóri og stóð hann sig bara með prýði og að sjálfsögðu var spilað bingó en kallinn vann ekkert. Maturinn var bara ágætur, sérstaklega tómaturinn sem var með eitthverju ostajukk í. Deildirnar voru með skemmtiatriði en eg missti af þeim.....málið var að eg hitti strák sem var með mer í Iðnskólanum og hef ekki hitt í mörg ár sem var mjög gaman. Þegar allir ræðumenn voru búnir að taka til máls þá tók Skímó við og spilaði fyrir dansi. þetta var bara gott kvöld.

En svo er það skólinn. Mikið er að gera þessa dagana. Skilað var hópverkefni 1 í markaðsfræði 3 í dag, svo er eg að skirfa einstaklingsverkefni í markaðsfræði 4, þarf að skila glærukynningu í dag og kynningin er á fimmtudaginn, verkefninu verður skilað á sunnudaginn. Einnig er verið að vinna að hópverkefni í markaðsfræði 4 og svo líka hópverkefni í starfsmannastjórnun.....sem sagt nóg að gera. Fyrir utan öll verkefnin þá eru netpróf, dæmaskil og annað sem verið er að vinna í....en maður þarf nu að skreppa til RVK bráðum.

Jæja er þetta ekki gott í bili.
kv gus

Tilvitnun dagsins
Persónuleika er ekki hægt að þróa í friði og ró. Aðeins fyrir tilstilli mistaka og þjáninga getur sál okkar öðlast styrk, sýn okkar skýrleika, metnaður fyllst innblæstri og árangur náðst.
Helen Keller

This page is powered by Blogger. Isn't yours?