<$BlogRSDUrl$>

föstudagur, janúar 21, 2005

Þetta hefur ekki gerst á þessari síður...uuussssss endalausar fréttir frá stráknum. En eg fór ekki til Rvk í dag en það kemur helgi eftir þessa helgi...kannski fær maður boðskort :)

Það verður svo sem nóg að gera hja mer. Eg er kominn með fyrsta verkefni mitt í markaðsfræði 4, eg valdi mer að skoða auglysingar til barna og unglinga sem er mjög spennandi. Það þýðir að eg verð að renna yfir tvær markaðsfræði bækur um helgina...yfir1100 blaðsíður. Við þurfum að skiptast á að hafa þessar bækur og eg varð auðvitað snöggur til... og ætla að lesa um helgina.
En annars lítur þetta allt vel út.

Stelpur...það er BÓNDADAGUR Í DAG, en eg veit að þið hafið staðið ykkur...eins og við strákarnir erum vanir að gera :)

Takk fyrir kveðjuna Elín frænka :)
Selma..eru ánægð núna??

ALLIR AÐ SKRIFA Í GESTABÓKINA!!

kv gus


Tilvitnun dagsins

Sjálfsvirðing fæst ekki gefins og ekki er hægt að kaupa hana. Hún vaknar þegar við erum ein, á hljóðum stundum og stöðum þegar okkur verður allt í einu ljóst að við höfum vitað hvað var rétt og hegðað okkur samkvæmt því, vitað hvað var fallegt og látið aðra fá hlutdeild í því, vitað hvað var sannleikur og ekki reynt að dylja hann.


- Ókunnur höfundur


fimmtudagur, janúar 20, 2005

Þá eru búnar 2 vikur af skólanum og allt gengur vel. Þetta lítur bara vel út og sérstaklega eftir kl. 14 á fimmtudögum því þá er eg kominn í helgarfrí og þá er freistandi að keyra til Rvk. Reyndar fór ég til Rvk síðustu helgi og átti eg mjög góða helgi...sérstaklega laugardagskvöldið.
En núna er verið að reynda taka ákvörðun hvort maður eigi að keyra suður í dag og jafnvel keyra til Hveragerðis og láta fara vel um sig það hja Begga og fjölskyldu....mjög freistandi.
Annars er ætlunin að fara suður í byrjun feb, því þá ætlar Böðvar að halda upp á afmælið sitt.

Jæja...er þetta ekki nóg í bili
kv gus


Tilvitnun dagsins

Fólk sem aldrei gerir meira en það er beðið um, fær aldrei greitt fyrir meira en það gerir.


- Elbert Hubbard


mánudagur, janúar 10, 2005

Jæja...nú er maður fluttur til Akureyrar til að stunda nám í háskólanum. En þetta byrjaði ekki vel, kom frá RVK í gærkvöldi og viti menn......gubbupestin skall fyrir strákinn í nótt...Mætti reyndar í fyrsta tímann kl 10 í morgun og helt það út í 45 mín og fór svo heim, en þetta er nuna allt að lagast.
Muna gestabókina
kv gus

This page is powered by Blogger. Isn't yours?