<$BlogRSDUrl$>

mánudagur, júní 27, 2005

hæhæ kæru vinir
loksins er maður orðinn nettengdur.
Ég kláraði skólann í maí og er nokkuð sáttur við útkomuna.
Það hefur verið mikið að gera hjá mer síðustu vikur. Ég var að keyra 4 breta í 3 daga. Byrjaði í KEF og fór með þau í Bláa Lónið á föstudaginn. Laugardaginn fórum við til Þingvalla, Gullfoss og Geysir, héldum þaðan áfram upp á Lanjökul á snjósleða. Ekki var veðrið skemmtilegt en það var rigning og rok.
Á sunnudaginn keyrði ég sandinn rétt hja þorlákshöfn, fór gegnum Eyrabakka og Selfoss og svo í Þórsmörk, keyrði í Bása svo Langadal og þaðan löbbuðu þau yfir í Húsadal þar sem eg náði í þau. Við fengum okkur nesti í góða veðrinu og töluðum um íslenskt þjóðfélag. Eftir nestið var lagt af stað til RVK en eg ákvað að fara með þau í sma auka rúnt í gegnum þúsundvatnaleiðina og voru þau mjög hrifin af þvi eins og allir gera. Þegar í RVK var komið var farinn bæjarruntur og svo á hótel. Þau voru rosa ánægð með ferðina í alla staði og var það tilgangnum náð.

Svo er mikið að gera í rafmagnsvinnuni, endalaus vinna.

jæja....munið gestabókina.
kv gus

fimmtudagur, júní 16, 2005

Hæhæ
hef verið netlaus í rvk...hræðilegt ástand....meira seinna.
kv gus

This page is powered by Blogger. Isn't yours?