<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur, mars 24, 2004

Tengsl milli áfengisneyslu og brjóstakrabbameins
Dönsk rannsókn sem danska krabbameinsfélagið stóð að og um 30.000 konur tóku þátt í, leiðir í ljós, að fyrir hvert glas af áfengi sem kona drekkur á dag, aukast líkurnar á að hún greinist síðar með brjóstakrabbamein, um 10%, að því er fram kemur í frétt Berlingske Tidende. Dönsk heilbrigðisyfirvöld mæla með því að konur drekki ekki meira en 14 glös af áfengi, sem samvarar 14 einföldum áfengisskömmtum, í viku hverri, en danskur vísindamaður sem fæst við rannsóknir á krabbameini, segir að þessi mörk séu of há. (www.mbl.is)

Þá vitið þið það esskurnar mínar, við strákarnir skulum bara sjá um drykkjuna, þið verðið bara að keyra okkur heim, það sparar leigubílakostnaðinn..........nei þetta var óþarfi :)

mánudagur, mars 15, 2004

Á laugardaginn fór ég á flotta árshátið Símans. Þar var sko ekki til sparað, þriggja rétta máltíð, hvítvín og rauðvín handa öllum, sem sagt 1000 manns. Karl Ágúst var veislustjóri, Örn Árna sagði brandara og Stuðmenn sáum um ballið til kl. 04:00. Ég hitti Jón idol söngvara sem brosti sitt breiðasta eins og alltaf. Hann biður að heilsa flestum ykkar en þið fáið ekki MSN-ið hans.
það má segja að þessi helgi hafi verið skemmtileg í flesta staði og einkennilega vildi svo til að helgin var mjög fróðleg líka, en ekki meira um það.
Sól úti
Sól inni
Sól í hjarta
Sól í sinni.
kv gus

þriðjudagur, mars 09, 2004

EINN GÓÐUR!

"Maður labbaði framhjá 17 ljóskum sem að stóðu fyrir utan Sjallann.
"Hvað eruð þið eiginlega að gera hérna fyrir utan," spurði hann.
"Tja..." svaraði ein, "við verðum að vera 18 til að komast inn!"

This page is powered by Blogger. Isn't yours?