<$BlogRSDUrl$>

föstudagur, september 09, 2005

Það er alltaf sama blíðan úti!!!
Það lítur út fyrir að eg sé bara liðinn og farinn af þessari jörðu..en svo er ekki.
Já..það sem er að gerast og buið að gerast síðustu mánuði. Í sumar var eg að vinna hja L.K rafverktaka og svo um helgar í jeppaferðum fyrir Fjallamenn, þannig að mikið var að gera hja mer í sumar.
Um daginn var farið á tónleika með Joe Cocker sem voru bara frábærir.

Ég seldi íbúðina mína um daginn með stórgróða.

Skólinn er byrjaður. Ég mætti ekki fyrstu vikuna þvi að eg þurfti að klára alla aukavinnu hér og þar um höfuðborgarsvæðið sem buið var að taka að ser.
Síðasta sunnudag keyrði eg norður, en á leiðinni komst eg að því að eg hefði ekkert húsnæði en Siddi vinur bjargaði mer eina nótt. Núna er eg á gistiheimili um stund, sem er bara fint, en er að bíða eftir öðru húsnæði.
Það lítur út fyrir að mikið verður að gera hja mer í vetur. Ég er í 7 fögum, er í skemmtinefnd Reka og ætla útskriftanemar að gefa út blað sem kemur út í desember. Ég tók að mer ritstjórastarfið sem á eftir að vera stórskemmtilegt.

Svo er það kvöldið í kvöld...vísindaferð í Viking brugg.

kv gus

Tilvitnun dagsins
Hinn endanlegi mælikvarði á persónuleika mannsins byggist ekki á afstöðu hans á tímum þæginda og hagkvæmni, heldur afstöðu hans á tímum áskorana og deilna.
Martin Luther King Jr.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?