<$BlogRSDUrl$>

mánudagur, júní 30, 2008

HÆHÆ
Prinsinn okkar var skírður þann 28.júní og fékk nafnið Áki Valur. Hann var rosalega góður og rólegur á meðan athöfnin var og svo sofnaði hann í lokin. Skírnin var í fríkirkjunni í Hafnafirði.
Mamma mín hélt á honum undir skírn, en hún átti afmæli þennan dag. Ekki nóg með það, vinkona okkar sem kom okkur saman, hún eignaðist stelpu þennan dag, þannig að þessi dagur var mjög stór og flottur :)

Annars er allt mjög gott að frétta. Ég hef verið í fríi í júní en byrja aftur að vinna 1.júli. Það eru mörg verkefni sem bíða mín. Fótbolta listinn er kominn út þannig að eg þarf að fara setja upp um 100 leiki ásamt flutt af öðrum ferðum sem eg er að koma af stað, koma með nýjungar í ferðum fyrir Íslendinga. Þið verðið að fylgjast með á http://www.expressferdir.is/ Þetta verður skemmtilegt fyrir mótorsport áhugamenn og konur.

Bið að heilsa í bili. Munið gestabókina :)
Kv Gústi :)

þriðjudagur, júní 24, 2008

Sælt verið fólkið.
Hvað er títt?? Sumarið er heldur betur byrjað, frábært veður síðstu daga.
Ég hef verið í fríi í júni mánuði, 2 vikur í orlof og 2 vikur í sumarfríi. Veðrið hefur bara leikið við mann.
Annars braggst drengurinn vel. Það hefur verið gaman að fylgjast með honum í þessum mánuði, hefði ekki viljað missa af þessum tíma. Við ætlum að skíra á laugardaginn í Hafnafirði og nátturulega liggur mikil leynd yfir þessu :)
Íbúðin mín er ennþá til sölu, ef einhver í svoleiðins hugleiðingum þá endilega látið mig vita.

Annars er allt gott, dagarnir bara líða svo hratt en samt skemmtilegir, þrátt fyrir miklar bleyju skiptingar :)



Ég sá þennan texta á netinu á einni heimasíðu. Þetta er um Sigur Rós, mjög skemmtlegt hvernig þeir enda textan :)

"ICELANDIC GOBBLEDIGOOK Remember that insanely beautiful girl you once saw at a festival? The one you wanted to lick mud off? Yeah. Well she loves this band. Icelandic fourpiece Sigur Rós are part dream-pop Elysium, part sodding earache (depending on your mood), but if you can learn the Icelandic for With A Buzz In Our Ears We Play Endlessly, you stand a good chance of one day getting laid in a cold country."

Bið að heilsa í bili. Munið gestabókina :)

Kv Gústi :)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?