þriðjudagur, ágúst 31, 2004
Það er bara fjör í Þórsmörk, frétt á mbl.is frá Ingu fréttaritara í Húsadal.
kv gus
Aldrei séð árnar svo rosalegar“
„Ég hef aldrei séð árnar svona rosalegar, það er rosalega mikið í þeim og straumurinn gríðarlegur. Það er útilokað að fara yfir þær,“ segir Inga Ingvarsdóttir, skálavörður í Húsadal í Þórsmörk, við Fréttavef Morgunblaðsins. Flugbjörgunarsveitin á Hellu hefur verið beðin um aðstoð inn í mörkinni vegna bíla sem átt hafa erfitt með að komast leiðar sinnar.
„Áætlunarrútan er innlyksa milli Steinholtsár og Krossár. Hún komst naumlega yfir þá fyrrnefndu sem hefur aukist að straumhörku síðan en komst alls ekki yfir Krossána. Um borð eru einir 7 farþegar. Við reyndum að fara til móts við hana á trukk en hann var vart kominn út í fyrsta álinn er vatnið buldi upp að rúðum og bílstjóranum tókst með snarræði að krækja í bakka og komast til baka upp úr,“ sagði Inga.
Hún sagði að gott veður hefði verið í Þórsmörk í gær en síðan rignt sem hellt væri úr fötu í nótt og í dag. „Litlar sprænur urðu fljótt að beljandi fljótum. Það er fátt fólk hérna núna, sjö hjá okkur í Húsadal og nokkrir í Langadal og Básum. Það fer vel um alla en það er einn gestur innlyksa í Langadal sem á pantað flug heim í fyrramálið. Það er verið að gera ráðstafanir til að reyna að koma henni til aðstoðar en fyrst rútan kemst ekki yfir árnar held ég að björgunarsveitirnar geti það tæpast,“ sagði Inga.
Lögreglan auglýsti veginn í Þórsmörk lokaðan
„Lækir á þessum slóðum eru orðnir að fljótum og ár að stórfljótum og ekki ráðlegt að reyna við þær. Því auglýstum við veginn inn í Þórsmörk lokaðan í morgun,“ sagði varðstjóri hjá lögreglunni á Hvolsvelli við mbl.is.
Að sögn lögreglunnar reyndi bílstjóri trukks frá Úrvali að fara inn í Þórsmörk í morgun. Fyrsta áin sem komið var að, Steinholtsá, var þá orðin það bólgin að hann flaut upp. Þegar hann kom svo að Krossánum lagði hann ekki út í vatnið svo mikið var í þeim. Lét hann lögregluna vita og eftir að hún hafði sett sig í samband við skála inn í Mörkinni til að kanna aðstæður ákvað hún að loka veginum. Þó var ekki höfð gæsla við veginn til að koma í veg fyrir að fólk leggi í hann, sagði lögreglan.
Tilvitnun dagsins
Flest fólk er um það bil eins hamingjusamt og það ákveður sjálft að vera.
- Abraham Lincoln

mánudagur, ágúst 30, 2004
hæhæ
Þið eru orðin aldeilis dugleg að skrifa í gestabókina, haldið áfram.
kv gus
Tilvitnun dagsins
Vertu árvakur. Verðu huga þinn fyrir neikvæðum hugsunum.
- Buddha

mánudagur, ágúst 23, 2004
Hæ hæ.
Þá er menningarkvöldið búið og gott var það. Enda fekk eg góða gesti sem gistu hjá mer, Sidda, Maríu og Katrínu. Hvernig er bakið Arnar?? Norðan menn mæta á suðurlandið og þurfa að enda á sjúkrahúsi..........uuuuuuuuuuussssssssssssssss.
Kv gus

miðvikudagur, ágúst 18, 2004
Sæll/sæl Pétur.
Já það er hann Þórhallur. Hann er ekki sáttur við sitt hlutverk þar sem hann er og krefst sjálfstæðis því að herbergi 14 fór alveg með sálina. Þórhallur óskar eftir því að herbergi 14 verði innsiglað, gleymt og grafið, helst sett í Markarfljótið við næsta flóð, past is past. Svo það sem er á óskalistanum er ný föt, allavegana að setja gömlu garmana í þvottavél.
Nonni, smá ruglingur.....sorry.

mánudagur, ágúst 16, 2004
hæhæ
Ég fór sá sýninguna Hárið á laugardaginn. Þetta var alveg frábært, mæli með þessari sýningu.
Það eru komnar myndir, kíkið á það.
Svo er það gestabókin, allir að skrifa.

mánudagur, ágúst 09, 2004
Elsku Snorri og Anna.
Til hamingju með brúðkaupsdaginn í gær, 12 ár geri aðrir betur.
Takk fyrir frábært kvöld í gærkvöldi.
kv Gústi frændi
Tilvitnun dagsins
Þar sem vini er að finna, þar er ríkidæmi.
- Titus Macchius Plautus

sunnudagur, ágúst 01, 2004
Hæ Hæ rosalega líður tíminn hratt, sumarið er að verða búið.
Eins og allir vita þá hætti ég hjá SBA 2.júlí.
Það er reyndar búið að vera mikið að gera hjá mér. Ég fór í 12 daga tjaldferð 7.júlí til 18.júlí með 6 farþega á bílnum hans Jonna. Ég hef ekki farið í tjaldferð í 5 ár, þannig að þessi ferð var djö góð. það var gaman að komast hringinn aftur, sérstaklega Ásbyrgi, og á hálendið.
Það hefur ekki komið svona ferð aftur en 19.júlí fór eg á jeppann hans Gumma Gunn hjá Mountaineers.is
Í gær fór ég í 7.ferðina og næsta ferð er á mánudaginn. Þessar ferðir hafa verið dagsferðir, t.d uppá Langjökul og þá allt að 30 jeppar í einni ferð. Svo fór eg sem driver guide á Mýrdalsjökul og svo í Landmannalaugar í gær og aftur á mánudaginn. Síðasta föstudag var farið í Þórsmörk á 5 jeppum með Ameríkana eftir miklu rigninguna. Það var mikið í ánum og náði ég nokkrum myndum sem koma seinna.
En en, svo fór ég yfir Sprengisand, gisti á Mývatni og yfir Kjöl næsta dag, fyrir fyrirtæki sem verður ekki nefnt með nafni á þessari síðu.
Svo er það Lk rafmagnsverktaki sem eg ætla að fara vinna fyrir. Þetta er Þorri Óla fyrir þá sem þekkja hann. Ég vann 2 og hálfan dag um daginn en svo fór hann í frí í 2 vikur og hefur þar af leiðandi verið rólegt en það er bara fint því að jeppinn hefur ekki stoppað.
Ég held að þetta sé bara gott í bili.
kv gus
Tilvitnun dagsins
Það besta sem manneskja getur gert til að hvetja aðra manneskju áfram er að hlusta á hana.
- Roy E. Moody