<$BlogRSDUrl$>

mánudagur, desember 29, 2003

Gleðilega hátíð.
Maður hefur ekki staðið sig mjög vel að skrifa fréttir en ég skal bæta úr því­.
Stærðfræðiprófið fór bara vel og ætla ég að taka tvö fög næstu önn, tölfræði og ársreikninga, sem verður spennandi...lí­klegt. Rebekka stóð sig heldur betur vel á prófunum, fékk 9.3 í­ meðaleinkun sem er bara nokkuð gott mundi eg segja.
Ég fór á Selfoss á aðfangadag til Þóru systir og fékk í­slenskar rjúpur sem voru löglega fangaðar enda frá því í ­ fyrra. Á jóladag fórum við norður í mat til mömmu og til baka aftur um kvöldið. Annars er maður búinn að hafa það gott síðustu daga, sofið var út og reynt að hvíla sig enda var erfitt að vakna í­ morgun.

Jæja, hvernig væri að skrifa í gestabókina ágætu lesedur, þið eru ekki að standa ykkur vel, nema Böðvar.
kv

miðvikudagur, desember 10, 2003

Nú er strákurinn að fara í stæfræðipróf á morgun, er svolítið stressaður en þetta ætti að ganga upp. Svo er nú komin helgi enn og aftur. Á föstudaginn fer ég á jólahlaðborð á Apótekinu sem verður frumraun, hef aldrei borðað þar áður. Rebekka og bekkurinn hennar eru að ljúka við prófin á föstudaginn og er þá tilvalið að halda upp á það með góðu jólahlaðborði. Böðvar...hvernær er þitt jólahlaðborð??
Gott í bili..

mánudagur, desember 08, 2003

Nú er liðin vika síðan ég skrifaði síðast og hef fengið skammir fyrir. Það hefur ekki mikið gerst síðustu daga nema það að ég var á dansleik með Dorrit á föstudaginn...Við dönsuðum polka saman. Eftir þetta kvöld og erum við í stöðugu email sambandi, enda er Óli kóngur orðinn abbó. Böðvar..hættu svo að skamma mig.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?