<$BlogRSDUrl$>

mánudagur, október 23, 2006

hæhæ
Jæja hvað er að frétta af ykkur??
Smá frettir af mer. Ég skrapp til danmerkur um helgina og það var bara dásamlegt.
En eg keypti mer íbuð símleiðis frá danmerku, bara snilld, var reyndar buinn að skoða hana og sá mikla möguleika á örlitlum aðgerðum. Íbuðin er 3 herbergja og er staðsett í Skipasundi. Það er tvær stofur og eitt svefnherbergi . Hugmyndin var að færa eldhúsið í minni stofuna og bua til gott herbergi úr eldhúsinu, rífa allt út ur baðherberginu og laga það aðeins til. Rafmagnið er allt gamalt og verður skipt um það allt saman. Semsagt allt í gangi hja kallinum. Ég fæ afhent 1.des eða jafnvel fyrr. HA vinir...það er spurning hvort það verði ekki party þegar vísindaferðin til RVK verður í mars 2007 :)
Þá er bara næsta skref að láta teikna fyrir sig nytt eldhús og baðherbergi. Svo koma allir og hjálpa til að rífa allt niður og byggja upp aftur. Og ekki má svo gleyma HÖRKU PARTY FYRIR ÞÁ SEM MÆTA Á STAÐINN :)
Jæja, gott í bili...........MUNIÐ GESTABÓKINA :)

KV GUS

Tilvitnun dagsins

Skip sem hvílir í höfn er öruggt, en það er ekki það sem skip voru smíðuð til að gera.

- William Shedd


laugardagur, október 14, 2006

hæhæ
Maður er bara vaknaður fyrir allar aldir á laugardegi. Reyndar er eg að fara vinna smá aukavinnu í dag, ja alltaf nóg að gera. Svo er hugmyndin að skoða íbúð...já já eg held það nú.

En viti menn....ætli maður hafi ekki verið að leika í stuttmynd í gær, rosa gaman. Ekki verður sú mynd löng eða um 1mín, en eg var nu bara í nokkrar sek sem er alveg nóg.

Næstu helgi er eg að fara til danmerkur. Rúna mín...eg kemst ekki í heimsókn í þessari ferð en það verður í ferðinni á næsta ári eins og maður ætlaði að stefna að og helst að taka HA bekkinn með sér.
En allt annað er frekar gott.

Med venlig hilsen GUS :)

þriðjudagur, október 10, 2006

hæhæ
Jæja kallinn skrapp til höfuðborg norðurlands síðustu helgi. Í HA var sprellmót en eg mætti nu bara um kvöldið í Sjallann. Það var rosa gaman, mikið fjör og gaman að hitta alla á einum stað :)
Maður mætir sko aftur í vetur einhverja góða helgi.
Laugardagskvöldið var einnig ágætt, nokkuð margir á kaffi ak en nokkrar hræður á Amour.

Annars er allt gott, nóg að gera á öllum vígstöðum. Maður er enn að skoða íbuðir til að kaupa, enda mikið til á sölu.

gott í bili.
kv gus

mánudagur, október 02, 2006

hæhæJæja hvað er að frétta. Tildæmis er gaman í vinnunni og svo hafa verkefnin hlaðist á mig í aukadjobbinu. Ég fekk það verkefni að leggja rafmagn í sumarbústað í Skorradal. Svo var vinkona mín og maður hennar að kaupa ser íbúð í vesturbænum og þar þarf að færa eldhúsið og þarf að gera nokkrar aðgerðir kringum það. Svo hef eg verið að leggja ljós í sólpall á Arnarnesinu og það er orðið rosalega flott, sem maður mátti nátturulega gera ráð fyrir :) Ekki nóg með það þá vildi hann ljósastaura fyrir framan húsið. Þannig að það bætist alltaf eitthvað við sem er bara fínt.
Síðustu helgi, á föstudeginum, fékk eg boðsmiða á tónleikana með Magna og Dilönu. Þau voru þræl mögnuð. Svo skelli eg mer á ball með þeim á laugardeginum sem var rosa gaman, fór svo bara heim eftir það, kíkti ekkert í bæinn :) Maður er svo duglegur :)

Svo er ennþá verið að skoða húsnæði, það er mikið af íbúðum til sölu, bara spurning að finna sér eitthvað sem manni líkar vel við og getur liðið vel í og jafnvel haldi party...er það ekki málið :)
jæja gott í bili.......MUNIÐ GESTABÓKINA

KV GUS

Tilvitnun dagsins:
Í þessum heimi er það ekki það sem við tökum okkur, heldur það sem við gefum frá okkur, sem gerir okkur rík.
- Henry Ward Beecher (Prestur og rithöfundur)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?