<$BlogRSDUrl$>

sunnudagur, janúar 07, 2007

GLEÐILEGT NYTT ÁR OG TAKK FYRIR ÞAÐ GAMLA ALLIR SEM EINN

JÆJA...Á MAÐUR AÐ GERA UPP ÁRIÐ?? KANNSKI Í NOKKRUM ORÐUM.

Átti frábæra vorönn í háskólanum á Akureyri. Eftir skólann fór eg að vinna hja L.K rafverktaka en var svo ráðinn hja Tourist Information Channel og er þar enn ásamt að vinna hja L.K.

Í sumar for eg til Danmerkur í 10 daga og það var rosa gaman, for svo aftur í okt minnir mig langa helgi, það var líka rosa gaman.

Eftir að eg kláraði skólann þá er eg buinn að fara nokkrar ferðir til Akureyrar, bara til að leika mer, hitta frábært fólk og gera eitthvað skemmtilegt. Maður verður nu að þakka þeim elskum Sisí og Rebekku fyrir að redda kallinum gistingu, fyrir þá sem þekkja þær ekki þá er eg ekki að tala um 3-som, þær eiga kalla :)

Gunni og Berglind giftu sig í sumar og eg mætti og hélt ræðu.

Keypti íbúð í Nov og fekk hana afhenda 1.des. Fór strax að rífa allt út.
Var um jólin í Kópavoginum og fór til Akureyrar yfir áramótin, það var svaka fjör.

Ekki verður farið í smáatriði að þessu sinni, þeir sem vilja smáatriði vinsamlegast hringið í mig :)

Annars er sama staðan á manni, engin kona og engin börn, enda hefur maður svo sem ekki haft tíma í svoleiðis, en maður bara byr til tíma þegar að þessu kemur
En eg held að Hrafnhildur hafi frekar miklar áhyggjur af þessu hja ser, mig minnir að mikil áhersla var lagt á "ENNÞÁ" er enginn kall kominn, en Hrabba, þetta er að koma hja þer, 2007 er þitt ár :)

Fyrir utan þetta allt, þá er bara djö gott að fretta, nóg að gera og lífið blasir við manni :)

Verið dugleg að skrifa í gestabókina, þið fyrir norðan eru svo að standa ykkur :) snillingar

GUS kveður að sinni :)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?