<$BlogRSDUrl$>

föstudagur, september 15, 2006

hæhæ
Rosalega er maður duglegur að blogga.....er það ekki Rúna mín :)

Það er nú eitt sem ekki má gleyma. Síðustu helgi þá fór eg, Finnbogi og Line norður í land. Laugardaginn 9.sept 2006 gifti Gunni sig út í Hrísey. Þetta var rosalega flott hjá þeim í alla staði. Gunni og Berglind voru alveg stór glæsileg og krakkarnir líka og maturinn var mjög góður.
Kallinn helt smá ræðu auðvitað. Ég tók mer það bessa leyfi og skilaði kveðju frá öllum í þessum vinahóp og las upp nöfnin á öllum.

kv GUS

miðvikudagur, september 13, 2006

Hæhæ
Já Rúna mín...eg þarf að vera duglegri að skrifa á bloggið.

Í dag þá lauk Vest Norden ferðaráðstefna þar sem við frá Tourist Information Channel vorum með bás. ég er nu nokkuð ánægður með þessa ráðstefnu, það komu mörg fyrirtæki sem komu til að spyrjast fyrir og höfðu mikinn áhuga, þannig að þetta gekk rosa vel.
Á mánudaginn þá komum við okkur fyrir á básnum en um kvöldið var velcome party í Listhusi RVK. Þar var boðið upp á drykkir og snyttur. Gleðinni var haldið áfram á Kaffi RVK með drykk og mat.
Í gærkvöldi var aðal kvöldið, Gala dinner. Milli 400-500 manns voru í mat, maturinn var frábær, Örn Árna var gestgjafinn, hann var bara góður.
Eftir matinn var ball til kl 01.00 og að því loknu bauð eg og hótelstjórinn á Cabin fullt af fólki á Cabin í Magna kvöld. Þar helt gleðin áfram.
Ekki meira í bili.

kv GUS

This page is powered by Blogger. Isn't yours?