<$BlogRSDUrl$>

fimmtudagur, febrúar 09, 2006

Þessa dagana er mikið að gera. Er byrjaður á lokaverkefninu og svo ofan á það eru önnur verkefni í gangi, próf á sunnudaginn og ekki má gleyma skemmtinefndinni.
Við erum að skipuleggja árhátíðna og allir verða að mæta, HA nemendur, hinir mæta á ballið, Í Svörtum fötum spilar fyrir gesti.
Eins og þið vitið er kallinn í skemmtinefndinni og skiljanlega situr hann við borð með skemmtinefndinni, stjórn FSHA, rektor, heiðursgesti og veislustjóra ásamt fleirum og er frítt að glúgg glúgg á því borði. En það besta er að kallinn má bjóða einum með sér :) hver ætli það að vera? hverjum ætti hann að bjóða með frítt á árshátíðina????? þetta verður erfitt!! hvar á kallinn að leita, Reykjavík, Akureyri eða annað??? það er stóra spurninginn. Ég þarf að hugsa þetta eitthvað nánar.
ég vild bara deila þessu með ykkur:)

kv gus

Tilvitnun dagsins
Vitur maður býr sér til fleiri tækifæri en hann finnur.
- Francis Bacon


mánudagur, febrúar 06, 2006

Um síðustu helgi var farið í vísindaferð til Reykjavíkur eða höfuðborg hamingjunar.
Lagt var á stað á fimmtudaginn. Ég fór á mínum bíl ásamt Betu og Berglindi en það fóru um 70 manns á tveim rútum.
Ferðin til Rvk var BARA skemmtileg. Við stoppuðum á Bifröst og heimsóttum Lindu systir Betu, voðalega sæt maður minn lifandi. Hún bauð okkur upp á hvítvín, kók og brauð með því. Ferðin var svo haldin áfram eftir góðar veitingar, mikið hlegið, lagið var tekið og mikið rætt um ............., bara hreinasta snilld.
Nú borgin nálgaðist og stefnt var á hótel Cabin þar sem allir gistu en af framhaldi af þvi...............................................................................................................................................................
..........................................og svo á sunnudagsmorgni vaknaði maður ferskur og var komin tími til að keyra norður. Við stoppuðum á KFC í Mosó. Fyrsta stopp á leiðinni var Staðarskáli og þar hittum við hópinn. Þar næst var stoppað hjá mömmu í pönnuköku og meira með þvi. Komum heim um hálf sjö.
Já maður minn lifandi segi eg bara aftur, þessi ferð til RVK var stórskemmtileg enda var ég með stórskemmtilega ferðafélaga...hláturinn lengi lífið segi eg nú bara. over and out

gus

This page is powered by Blogger. Isn't yours?