<$BlogRSDUrl$>

þriðjudagur, maí 18, 2004

SVONA SVONA...ÞAÐ ER ÞETTA. Já já þið viljið slúður..uuummmmmm. Það er bara lítið að gerast hjá mér nema hvað að allt er dásamlegt...er það ekki Siddi??? Ég var að koma af námskeiðinu og vann penna fyrir tímamótaárangur...hreinasta snilld, og ekkert kjaftæði hér.

Nú ég fór í skemmtilega ferð á föstudaginn. Við fórum á 7 rútum austur fyrir fjall. Delta/Pharmaco, sem heitir Actavis í dag, fór í starfsmannaferð sem var skipulögð af Eskimos. Farið var í leiki hjá Hafiðbláa og borðað frábæran mat í Þorlákshöfn. Við vorum komnir heim úr ferðinni á verkstæðið um kl. 01:00. Ég sendi strákana heim nema ég og Pétur P. við kláruðum að þrífa bílana. Um kl 4 var eg kominn heim undir sæng. Allt tókst mjög vel enda voru allir ánægðir með okkar hlut í þessari ferð og hafa starfsmenn Actavis og Eskimos þakkað okkur fyrir. Það má bóka að við eigum eftir að fá meiri vinnu frá þessum fyrirtækjum. Við stóðum allir að þessu saman og þakka eg strákunum fyrir það. Ég tók nokkrar myndir sem eg mun senda þer Siggi við tækifæri.

Svo er bara allt að gerast í vinnuni, transferðirnar eru að byrja sem þýðir bara eitt, að ferðalangarnir eru allir að koma til Íslands. Verst að geta ekki notað littla hroll í nokkrar hringferðir, seldur, farinn.....en leiðinlegt.

Jæja, meira seinna.
Kv gústi g

Tilvitnun dagsins
Í þessum heimi er það ekki það sem við tökum okkur, heldur það sem við gefum frá okkur, sem gerir okkur rík.

- Henry Ward Beecher (Prestur og rithöfundur)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?