laugardagur, ágúst 02, 2008
Hæhæ kæru vinir.
Rosalega er maður lélegur að skrifa hérna inn. Kannski er ekkert að gerast hja manni, greinilega meira að gerast þegar háskólatímabilið var að ganga yfir. Ju fyrir utan káta strákinn minn. Hann bara dafnar og dafnar, þyngist og stækkar, brosir og hlær, er algjör skemmtikraftur og party ljón :) ......þetta er sko minn maður :)
Vinnu tengt þá fór eg í 3 daga ferð til UK, var eina nótt í Manchester og aðra í Liverpool. Tilgangur ferðarinnar var hótelskoðun. Eg nota mikið hótel á þessum stöðum og það er mikilvægt að maður þekki til hótela. Einnig er gott að koma á staði til að taka myndir, skoða veitingastaði og fótboltavelli eins og í mínu tilfelli. Þessi ferð var nu hraðferð en samt sem áður mjög gaman.
Í þessum mánuði fer eg til Valencia sem fararstjóri í formúluferð en við gistum á 5* golfhóteli í Alicante. Þeir sem hafa áhuga á golfi og horfa á formúluna ættu að skella ser með, það eru nokkrir miðar eftir. Og svo má nátturulega ekki gleyma sólinni og allri gleðinni sem þvi fylgir, þetta verður bara gaman. :)
En fyrst að maður er með litlar fréttir af sjálfum sér, á maður þá að fara skrifa um mál þjóðfélagsins?? veit ekki hvort eg er að fara nenna þvi. En mig langar samt að segja eitt um fyrrverandi þjálfara ÍA. Ég held að hann ætti að fara gera eitthvað annað og að fréttamenn á þessu landi ættu að hætta að tala við hann. Hann bara útúðar öllu og öllum, hver nennir að hlusta á svona menn? Kallinn er útbrunninn, svektur og kjaftfor. Hann er ekki góð fyrirmynd í íslenskum íþóttum, hvoki til annara þjálfara, dómara, knattspyrnumanna eða yngri knattspyrnustráka sem eru að feta sig áfram í þessari íþrótt, enda er hann ekki háttskrifaður hja þjóðinni sem fylgist með íþróttum. Jæja, hvernig var þetta? var þetta ekki fín umræða? þið kannski leggið inn ykkar álit í gestabókina þótt að þið hafið ekki hugmynd um hvað eg er að tala....... er nokkur skyldur honum sem kemur her inn?? :)
En þetta er orðið gott í bili, aldrei að vita ef maður skrifi meira um mál þjóðfélagsins, þau eru nú flest ekkert skemmtileg en það gerist stundum :)
Munið gestabókina.
Kv Gústi :)