<$BlogRSDUrl$>

mánudagur, ágúst 06, 2007

HÆHÆ
Enn og aftur lætur maður marga daga og vikur líða og ekkert gerist á þessari ágætu síðu. En eg varð nu að segja hvað margir eru nu duglegir að skrifa í gestabókina :)

En hvað hefur svo sem gerst í sumar. Það er nu margt og ekkert í bland. Í júlí for eg í 3 daga göngu fyrir norðan, það var mjög gaman nema að vinstra hnéið fór eitthvað að klikka, gaf eftir á versta stað. Í lok júlí var farið í útileigu í þakgili sem var mjög gaman, hef aldrei komið þangað áður. Á laugardeginum var keyrt langleiðina að Mýrdalsjökli í góður veðri. Útsýnið var frábært.
Verslunarmannahelgin var róleg. Aukavinnan tók við alla dagana nema mánudagurinn var frí sem var mjög notalegt.
Ég ætla að setja inn myndir það sem tekið var í sumar, alla vega eitthvað af þvi.

Annars er nýja vinnan hjá Express Ferðum mjög skemmtileg, þeir sem ætla í fótboltaferðir, golfferðir eða annað hringja í mig.

Íbúðin er í sama ástandi og þegar eg flutti inn í apríl eða svo sem næstum þvi. Ég hef bara hreinlega ekki nennt að gera nokkurn hlut sem er bara í lagi :) þetta gerist hægt og rólega.

Þetta var frekar snubbóttar fréttir af manni :)

En annars leikur bara lífið við mann.
Haldið áfram að skrifa í gestabókina.

KV Gústi :)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?