miðvikudagur, janúar 28, 2004
KONUR
Hvernig á sú kona að vera, sem karli skal til hæfis gera.
Hún þarf að vera undurfríð , og karli sínum ávalt blíð.
Með matinn ávalt á réttum tíma, og ekki sitja og hanga í síma
skyrtan strokin inní skáp, og ekkert óþerfa búðarráp.
Að baka þarf konan líka að kunna, og að haga sér alveg eins og nunna.
Börn skal konan manni sínum ala, og ekki yfir íþróttum tala.
Karlinum þarf hún sífellt að hæla, og á kvöldin skal hún við hann gæla.
Konan skal halda vextinum fínum, þótt karlinn tapi sínum línum.
Karlinn á að styðja í framapoti, og ekki vekja úr fyllerís-roti.
Heimilið skal vera strokið og fínt, svo karlinn geti það öðrum sýnt.
Konan skal kunna negla og saga, svo ekki þurfi hún karlinn að plaga.
Garðinn hreinsa og bílinn bóna, og bursta af karli sínum skóna.
Svo skal hún brosa og vera fín, svo karlinum ekki glepjist sýn.
En ef hann rær á önnur mið, skal konan kunna að halda frið.
Þið vitið það eflaust allar nú, að vandi er að vera frú.
AMEN.

þriðjudagur, janúar 27, 2004
Ég hef fengið skammir, hótunarbréf og endalaus símtöl. Ekki bara yfir hábjartan dag heldur einnig langt eftir miðnætti þegar venjulegt fólk sefur. Ástæðan....jújú þessi síða æsir menn upp sem veldur kláða...uuummmm en það er kannski bara í Kópavoginum.......Einar esskan....hvenær eigum við að fá okkur bjór??? Ekki að ég sé að hvetja fólk til bjór drykkju, bjórinn liggur enn í ísskápnum og hefur setið þar síðan 23.maí 2003. En það var gaman að heyra frá þér Einar!!!
kv
kv
þriðjudagur, janúar 20, 2004
Hér hefur lítið verið að gerast......enda lítið um að vera hjá manni. Skólinn er byrjaður sem á að þýða lærdóm á kvöldin og um helgar.....well well
Ekki gleyma gestabókinni!!!
Ekki gleyma gestabókinni!!!
laugardagur, janúar 03, 2004
Mig langar að óska Öddu og Adda til hamingju með frumburðinn sem kom í heiminn þann 1. janúar.
föstudagur, janúar 02, 2004
GLEÐILEGT NÝTT ÁR OG TAKK FYRIR ÞAÐ GAMLA. ÁRIÐ 2003 ER NÚ Á ENDA .. AT LAST. ÉG TEL AÐ ÁRIÐ 2004 VERÐI ENN BETRA OG MARGT EIGI EFTIR AÐ GERAST, ÞÁ ER BARA AÐ BÍÐA OG SJÁ.
KV
KV